Content-Length: 164658 | pFad | http://is.wikipedia.org/wiki/Slavnesk_m%C3%A1l

Slavnesk tungumál - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Slavnesk tungumál

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Slavnesk mál)
Slavnesk tungumál
Ætt Indóevrópskt
 Baltóslavneskt
Frummál Frumslavneska
Undirflokkar Austurslavnesk tungumál
Suðurslavnesk tungumál
Vesturslavnesk tungumál
ISO 639-5 sla
  Lönd þar sem austurslavneskt mál er talað
  Lönd þar sem vesturslavneskt mál er talað
  Lönd þar sem suðurslavneskt mál er talað

Slavnesk tungumál eru hópur skyldra indóevrópskra mála sem töluð eru af Slövum, mest í Austur-Evrópu, á Balkanskaganum, í Mið-Evrópu og Norður-Asíu. Þeir sem tala slavnesk tungumál eru um 315 milljónir samtals.

Oftast er slavneskum tungumálum skipt í þrjár greinar á landfræðilegum og ættfræðilegum grunni:

Baška-taflan sem fannst á eyjunni Krk í Króatíu

Slavnesk tungumál eiga rætur sínar að rekja til frumslavnesku, sem á sinn uppruna í frumindóevrópsku, formóður allra indóevrópskra tungumála. Stigið milli frumindóevrópsku og frumslavnesku var frumbaltóslavneska, en á tímanum þegar hún var töluð þróuðust margir sameiginlegir eiginleikar hvað varðar hljóðfræði, beygingarfræði, orðaforða og orðaröð. Því eru baltnesk og slavnesk tungumál skyldust allra indóevrópskra tungumálagreina. Talið er að frumslavneska hafi greinst frá frumbaltóslavnesku á tímabilinu 1500–1000 f.Kr.

Víða voru rétttrúaðir Slavar neyddir til að tala fornkirkjuslavnesku í stað móðurmáls síns. Orð úr fornkirkjuslavnesku, helst þau sem lýsa óhlutbundnum hugtökum, voru því tekin upp í mörgum slavneskum tungumálum. Í kaþólskum löndum var ástandið nokkuð öðruvísi en þar voru mörg orð tekin úr latínu. Pólska endurreisnarskáldið Jan Kochanowski skrifaði á móðurmáli sínu, ásamt króatískum barokkhöfundum sem voru virkir á 16. öld. Fyrir þennan tíma hafði pólskan fengið mörg orð úr latínu á svipaðan hátt og rússneskan átti eftir að gera nokkru seinna.

Þó að fornkirkjuslavneska hindraði notkun á móðurmálum kom hún líka í veg fyrir áhrif að utan og studdi við slavneskar bókmenntir. Einungis króatískar bókmenntir ná eins langt aftur og þær kirkjuslavnesku. Eitt elsta handrit á króatísku er Vinodol-lögbókin, en þróun bókmennta á tungumálinu hélt áfram í gegnum endurreisnina þangað til króatíska var stöðluð árið 1830. Samt var mikið af textum sem skrifaðir voru frá 1300 til 1500 á blöndu móðurmála og fornkirkjuslavnesku eins og tíðkaðist í Rússlandi og annars staðar á þeim tíma.

Mikilvægasti forngripur króatískra bókmennta er Baška-taflan frá 11. öld. Hún er stór steintafla sem fannst í litilli kirkju á eyjunni Krk við Króatíu. Textinn á töflunni er að mestu leyti skrifaður á tjakavísku, mállýsku sem var rituð með glagólitíska stafrófinu.

Nýlegri áhrif á slavnesk mál eru svipuð þeim sem urðu í öðrum tungumálum og má rekja til pólitískra tengsla Slava. Á 17. öld voru mörg þýsk orð tekin inn í rússnesku vegna beinna samskipta Rússa og þýskra innflytjenda í Rússlandi. Á tíma Péturs mikla voru tengsl við Frakkland sterk og því kom mikið af frönskum orðum og lánsþýðingum inn í málið. Verulegur fjöldi þessara orða er notaður enn í dag og leysti gömul slavnesk tökuorð af hólmi. Á 19. öld var það hins vegar rússneskan sem hafði áhrif á hin slavnesku málin á einn eða annan hátt.

Slavnesk tungumál eru furðulega einsleit miðað við aðrar indóevrópskar málaættir (t.d. germönsk, rómönsk og indóírönsk tungumál). Þangað til á 10. öld var slavneska eitt tungumál með nokkrar mállýskur. Í samanburði við flest önnur evrópsk tungumál eru slavnesk mál frekar íhaldssöm, sérstaklega hvað varðar beygingarendingar. Flest slavnesk tungumál hafa ríkt beygingarkerfi sem varðveitir mikið af frumindóevrópskum beygingarmyndum.

Samstofna orð

[breyta | breyta frumkóða]
pólska tékkneska rússneska úkraínska slóvenska króatíska búlgarska fornkirkjuslavneska millislavneska íslenska
księga, książka kniha книга (kníga) книжка (knýžka) knjiga knjiga книга (kníga) кън҄ига (kŭnʹiga) kniga / книга bók
dzień den день (d’en’) день (den’) dan dan ден (den) дьнь (dĭnĭ) denj / дењ dagur
jabłko jablko яблоко (jábloko) яблуко (jabluko) jabolko jabuka ябълка (jabǎlka) аблъко (ablŭko) jabloko / јаблоко epli
noc noc ночь (noč’) ніч (nič) noč noć нощ (nošt) нощь (noštĭ) noč / ноч nótt
śnieg sníh снег (sneg) сніг (sníh) sneg snijeg сняг (snjag) снѣгъ (sněgŭ) sněg / снєг snjór
woda voda вода (vodá) вода (vodá) voda voda вода (vodá) вода (voda) voda / вода vatn








ApplySandwichStrip

pFad - (p)hone/(F)rame/(a)nonymizer/(d)eclutterfier!      Saves Data!


--- a PPN by Garber Painting Akron. With Image Size Reduction included!

Fetched URL: http://is.wikipedia.org/wiki/Slavnesk_m%C3%A1l

Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy