Helgi Styrsson
Helgi Styrsson (d. eftir 1430) var íslenskur sýslumaður og hirðstjóri á 15. öld. Hann bjó á Krossi í Landeyjum. Ætt hans er óþekkt.
Helgi var einn af þeim sem skrifuðu undir hyllingarbréf Eiríks konungs af Pommern á Alþingi 1419 og hefur því verið í hópi helstu höfðingja landsins. Í bréfi frá 11. apríl 1420, um óleyfilega vetursetu sex enskra kaupmanna í Vestmannaeyjum, er hann sagður sýslumaður þar. Í bréfi til Eiríks konungs sem skrifað er á Alþingi sama sumar virðist hann vera orðinn hirðstjóri eða umboðsmaður hirðstjóra ásamt Þorsteini Helmingssyni (Ólafssyni). Í öðru bréfi sem skrifað er seinna um sumarið kallar hann sig hirðstjóra sunnan og austan.
Sonur Helga var Teitur bóndi í Stóradal undir Eyjafjöllum.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Íslenskt fornbréfasafn, 9. bindi, Reykjavík 1909-1913.
Fyrirrennari: Arnfinnur Þorsteinsson |
|
Eftirmaður: Hannes Pálsson Balthazar van Damme |