Dianne Feinstein
Dianne Feinstein | |
---|---|
Öldungadeildarþingmaður fyrir Kaliforníu | |
Í embætti 4. nóvember 1992 – 29. september 2023 | |
Forveri | John Seymour |
Eftirmaður | Laphonza Butler |
Borgarstjóri San Francisco | |
Í embætti 27. nóvember 1978 – 8. janúar 1988 | |
Forveri | George Moscone |
Eftirmaður | Art Agnos |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 22. júní 1933 San Francisco, Kaliforníu, Bandaríkjunum |
Látin | 28. september 2023 (90 ára) Washington, D.C., Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarísk |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Jack Berman (g. 1956; sk. 1959) Bertram Feinstein (g. 1962; sk. 1978) Richard C. Blum (g. 1980; d. 2022) |
Börn | 1 |
Háskóli | Stanford-háskóli (BA) |
Undirskrift |
Dianne Goldman Berman Feinstein, fædd Dianne Emiel Goldman (22. júní 1933 – 28. september 2023) var bandarísk stjórnmálakona úr Demókrataflokknum sem sat á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Kaliforníu frá 1933 til dauðadags árið 2023. Hún var áður borgarstjóri San Francisco frá 1978 til 1988.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Dianne Feinstein fæddist 22. júni 1933 í San Francisco. Faðir hennar var Gyðingur en móðir hennar kaþólsk en Dianne valdi að aðhyllast trú föður síns.[1]
Dianne Feinstein nam sagnfræði og stjórnmálafræði við Stanford-háskóla og var á þeim tíma virk í stúdentapólitík, meðal annars sem varaformaður stúdentafélagsins. Hún hóf að loknu námi afskipti af borgarmálum San Francisco og var árið 1969 kjörin í borgarráðið. Hún bauð sig tvívegis fram til borgarstjóra, árin 1971 og 1975, en náði ekki kjöri.[1]
Árið 1978 voru borgarstjóri San Francisco, George Moscone, og næstráðandi hans, Harvey Milk, skotnir til bana í ráðhúsi borgarinnar. Var þá gert samkomulag um að Feinstein lyki kjörtímabili Moscone í borgarstjóraembætti.[2] Feinstein gat sér gott orð í borgarstjóraembættinu og var auðveldlega endurkjörin í kosningum árið 1979.[1]
Feinstein var kjörin á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Kaliforníu árið 1992 og var þá önnur af tveimur fyrstu konunum til að sitja á öldungadeildinni fyrir fylkið. Feinstein varð síðar fyrsta konan til að stýra leyniþjónustumálanefnd öldungadeildarinnar. Á þingferli sínum beitti Feinstein sér fyrir aukinni umhverfisvernd, kvenréttindum og hertri skotvopnalöggjöf. Einn helsti sigur hennar á þingferlinum var unninn þegar þingið samþykkti bann á árásarvopnum árið 1994. Bannið gilti í tíu ár en var aldrei framlengt.[2]
Feinstein sat á öldungadeildinni í rúm þrjátíu ár, þar til hún lést árið 2023. Undir lokin var hún elsti sitjandi meðlimur öldungadeildarinnar. Á síðustu árum sínum var Feinstein heilsuveil og átti við minnisvandamál að stríða, sem leiddu til þess að oft var skorað á hana að segja af sér þingmennsku.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 Þórarinn Þórarinsson (5. maí 1983). „Verður Feinstein ríkisstjóri í Kaliforníu?“. Tíminn. bls. 7.
- ↑ 2,0 2,1 Samúel Karl Ólason (29. september 2023). „Dianne Feinstein, elsti öldungadeilarþingmaðurinn, er látin“. Vísir. Sótt 6. október 2023.
- ↑ „Dianne Feinstein látin“. mbl.is. 29. september 2023. Sótt 6. október 2023.