Fara í innihald

Fengitími

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Fengitími er sá tími árs sem dýr eru reiðubúin til mökunar. Fengitíminn er ýmist einu sinni á ári eða oftar en allt fer það eftir dýrategundum. Atferli dýra breytist oft mjög um fengitímann, og jafnvel svo að dýrin taka ekki eftir hættum sem að þeim steðja.

Um orðanotkun

[breyta | breyta frumkóða]

Orðið fengitími er haft almennt um riðtímann, en einnig um þann tíma þegar hleypt er til ánna, en það er tímabil sem spannar frá því skömmu fyrir jól fram í janúar. Orðið hrygningartími er aðeins haft um fiska enda orðið komið af orðinu hrogn.

Stundum er talað um að dýr séu í bríma á fengitíma þegar skepnan er viljug til eðlunar. Sumar skepnur eiga sér þó sér orðalag. Kýr verða til dæmis yxna eða beiða.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy