Fara í innihald

Maurice Allais

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maurice Allais

Maurice Allais (31. maí 19119. október 2010) var franskur hagfræðingur, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1988. Hann var einn af stofnendum Mont Pèlerin-samtakanna, alþjóðlegs málfundafélags frjálshyggjumanna, 1947.

Allais fæddist í París, og rak faðir hans ostabúð, en féll í fyrri heimsstyrjöld, 1915. Allais braust til mennta og lauk prófum í stærðfræði og heimspeki, áður en hann settist í École Polytechnique, Verkfræðiskólann, í París. Hann gerðist námuverkfræðingur, en gaf einnig út ýmis hagfræðirit. Frá 1948 stundaði hann aðeins háskólakennslu og rannsóknir við ýmsar stofnanir. Þótt hann væri einn af stofnendum Mont Pèlerin samtakanna 1947, tók hann lítinn þátt í starfi þeirra, enda var hann ekki sannfærður um eina meginkenningu frjálshyggjumanna, sem er, að náttúruauðlindir séu best komnar í eigu einkaaðila. Hann hefur líka látið í ljós efasemdir um, að óheft alþjóðaviðskipti hafi eins góðar afleiðingar og flestir frjálshyggjumenn halda fram.

pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy