Fara í innihald

Tokkaríska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Brot úr pappírshandriti á tokkarísku.

Tokkaríska er ein af minnst þekktu greinum indóevrópskra tungumála. Hún skiptist í tvö tungumál: Tokkarísku A (agnísku, túrfönsku, karasjarísku eða austurtokkarísku) og Tokkarísku B (kútsjönsku eða vesturtokkarísku). Þau voru töluð af Tokkurum í Tarímdældinni (sem nú er Sinkiang í Kína) í Mið-Asíu á 6. öld til 8. aldar þegar þau dóu út fyrir áhrif frá úígúrum sem tóku að sækja inn í Tarímdældina um 800.

Tokkarísku málin og tokkaríska stafrófið voru óþekkt þar til handrit rituð á tokkarísku uppgötvuðust fyrir tilviljun í byrjun 20. aldar. Efni þessara handrita er einkum þýðingar helgar á búddískum sanskrít-textum en auk þess er um að ræða ýmis skjöl úr klaustrum búddamunka, reikninga og verslunarbréf.

Jörundur Hilmarsson hóf að gefa út tímarit á Íslandi sem fjallaði eingöngu um Tokkarísk fræði árið 1987 (Tocharian and Indo-European Studies), en þegar hann lést 1992 fluttist útgáfa þess til Danmerkur. Jörundur hóf einnig ritun orðsifjaorðabókar tokkarískunnar sem Málvísindastofnun gaf síðan út í sérriti sem nefnist Materials for a Tocharian Historical and Etymological Dictionary og inniheldur drög að þeirri bók, en Jörundur lauk ekki við hana fyrir andlát sitt.

1 - 10 og 100 á tokkarísku A og tokkarísku B

[breyta | breyta frumkóða]

1 - sas - se

2 - wu - wi

3 - tre - trai

4 - stwar - stwer

5 - pan - pis

6 - sak - skas

7 - spat - sukt

8 - okat - okt

9 - nu - nu

10 - sak - sak

100 - kant - kante

pFad - Phonifier reborn

Pfad - The Proxy pFad of © 2024 Garber Painting. All rights reserved.

Note: This service is not intended for secure transactions such as banking, social media, email, or purchasing. Use at your own risk. We assume no liability whatsoever for broken pages.


Alternative Proxies:

Alternative Proxy

pFad Proxy

pFad v3 Proxy

pFad v4 Proxy